Upplýsingar um meðferð
Eftirfarandi eru upplýsingar um tæknisæðingu hjá ART Medica.
Þegar ákveðið hefur verið að tæknisæðing sé næsta skref fyrir ykkur þá hringið á á fyrsta
degi blæðinga (á mánudegi ef blæðingar byrja um helgi). Ef þið eruð að koma í fyrsta sinn í
meðferð fáið þið viðtal við ljósmóðir/hjúkrunarfræðing.
Þá er meðferðin útskýrð nánar og ykkur er kennt að sprauta og meðhöndla lyfin.
Hvenær er tæknisæðing notuð ?
Tæknisæðing er einungis gerð ef eggjaleiðarar konunnar eru heilbrigðir.
Hvað kostar meðferðin ?
Meðferðin kostar kr. 52.000 og er greidd í upphafi meðferðar.
Hormónameðferðin
Meðferðin hefst á 2. eða 3. degi blæðinga. Konan kemur í sónarskoðun og í framhaldi af því
hefst lyfjameðferð. Konan fær lyfið FSH (Gonal-f eða Puregon) sem er hormón og er gefið til
að örva vöxt og þroska eggbúa. Lyfið er stungulyf sem er sprautað daglega undir húð þar til
eggbú hafa náð réttri stærð og þroska. Á þessu tímabili þarf að koma í sónarskoðun
í nokkur skipti á morgnana milli kl. 8:00 og 9:30. Þetta er gert til að fylgjast með
vexti og þroska eggbúa og tímasetja tæknisæðinguna. Oftast tekur örvunin um það bil sjö til
tólf daga, en í sumum tilfellum getur hún tekið lengri tíma. Þegar eggbúin eru nægilega stór
og þroskuð er gefin ,,miðnætursprauta" eða ,,egglosunarsprauta".
Hvað er miðnætursprauta ? -egglosunarsprauta
Miðnætursprauta er til þess að framkalla egglos og tímasetja tæknisæðinguna. Lyfið er gefið
þegar eggbúin hafa náð réttri stærð og þroska. Sprautað er í eitt skipti undir húð 32 til 36 klst.
áður en tæknisæðing fer fram. Mikilvægt er að gefa miðnætursprautuna nákvæmlega á þeim
tíma sem upp er gefinn.
Hvernig fer tæknisæðing fram ?
Þið mætið á ART Medica á þeim tíma sem ykkur er gefinn. Oftast mætir karlmaðurinn með
sæðisprufu milli kl. 8:00 og 9:00 að morgni og konan kemur í uppsetningu nokkrum
klukkustundum síðar. Eftir meðhöndlun á rannsóknarstofu eru sæðisfrumur settar upp í leghol
konunnar með örfínum plastlegg. Þetta tekur stutta stund og konan fer heim strax á eftir.
Engin lyf eru notuð við sjálfa tæknisæðinguna.
Er alltaf sami lyfjaskammtur í meðferðinni ?
Stundum þarf að breyta lyfjaskammti meðan meðferðin stendur yfir. Skammtastærðin er
endurmetin eftir niðurstöðu úr sónarskoðun
Hvenær á að gefa sér lyfin ?
Mikilvægt er að sprauta sig alltaf á svipuðum tíma á morgnana milli kl. 7:00 og 10:00.
Hvenær á að hætta á lyfjunum ?
Eftir að miðnætursprauta hefur verið gefin hættir konan á FSH sprautum. Tæknisæðing
er gerð 32 til 36 klst. eftir miðnætursprautuna. Þið fáið nákvæma tímasetningu fyrir
tæknisæðinguna hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi.
Getur lyfjameðferðin misheppnast ?
Venjulega þroskast eitt til tvö eggbú í hormónameðferðinni en stundum myndast fleiri
eggbú. Þá getur þurft að stöðva meðferðina vegna hættu á fjölburaþungun.
Hver er árangur af tæknisæðingum ?
Líkur á að verða barnshafandi eftir hverja meðferð með tæknisæðingu eru
um það bil 16-17%.
Hvenær er þungunarpróf gert ?
Þungunarpróf er gert tveimur vikum eftir tæknisæðinguna ef tíðablæðing hefur
ekki byrjað. Konan tekur þvag þungunarprufu og hefur samband við ART Medica um niðurstöðu
Ef þungunarpróf er jákvætt
Ef þungunarpróf er jákvætt er gerð sónarskoðun 2-4 vikum síðar.
Ef meðferðin heppnast ekki ?
Venjulega eru gerðar ein til fimm meðferðartilraunir. Ef meðferð ber ekki árangur með
tæknisæðingu er venjulega reynd glasafrjóvgun. Ráðfærið ykkur við lækni um næstu skref.




