Flýtileiðir um vef:

Uppsetning á frystum fósturvísum

Upplýsingar um meðferð

Eftirfarandi eru upplýsingar um meðferð við uppsetningu frystra fósturvísa. Hringið á fyrsta
degi blæðinga í þeim mánuði sem þið óskið eftir að koma í meðferð.

Hvað tekur meðferðin langan tíma?

Meðferðin tekur tvær til sex vikur frá því að lyfjameðferð hefst og þar til að
fósturvísar eru settir upp í leghol konunnar.

Undirbúningur

Við undirbúning fyrir uppsetningu á frystum fósturvísum  eru aðallega 3 undirbúningsmeðferðir .   Náttúrulegur hringur  , en þá er konunni fylgt eftir í eðlilegum tíðarhring og fósturvísum komið fyrir  2-3 dögum eftir egglos.    Stýrður hringur  , þar sem notað er  Femanest með eða án  Suprefacts.  

Læknir mun ákveða hvað undirbúningsmeðferð  er heppilegust  hverju sinni .
 

 

Hvenær er fósturfærsla gerð ?

Ef fósturvísar dafna eðlilega eftir þiðnun er uppsetning fósturvísa á mánudegi, miðvikudegi eða föstudegi.


Hormónameðferð eftir uppsetningu fósturvísa

Ef  Femanest  hefur verið notað við undirbúning fyrir uppsetningu þá  tekur konan  áfram  Femanest töflur (6 mg. daglega) og Utrogestan 2 töflur x 3svar á dag ( eða Geston 1 ml. sprautur daglega )   þar til niðurstaða þungunarprófs liggur fyrir.
Líkur á að þungun verði eftir uppsetningu frystra fósturvísa er um það bil 30% eftir hverja meðferð.

Hvenær er þungunarpróf gert ?

Þungunarpróf er gert 14 dögum eftir uppsetningu fósturvísa og ef það er
jákvætt er það einnig mælt tveimur til þremur dögum síðar.

Hormónameðferð ef þungunarpróf er jákvætt

Ef þungunarpróf er jákvætt er Femanest aukið í 8 mg. (4 töflur) daglega og Utrogestan
heldur áfram 2 töflur þrisvar á dag (settar upp í leggöng). Þessi lyfjameðferð heldur áfram þar
til meðganga er orðinn 12 vikur. Þá er Utrogestan  minnkað í 300 mg.  þe 1 tafla þrisvar á dag
og Femanest 2mg  í 1 töflu á dag.    Lyfjameðferð er hætt við 13 vikna meðgöngu.

Sónarskoðanir eru gerðar í 6. og 8. viku meðgöngu eftir það fer konan í venjubundið mæðraeftirlit.


Leitarvél | Aftur í flýtileiðir

Ýmislegt | Aftur í flýtileiðir
Velkomin á heimasíðu okkar. Góður árangur. Sérfræðingar í ófrjósemi síðan 1991
Graphic