Lyf sem notuð eru í glasa- og smásjárfrjóvgunarmeðferð
Suprefact ( buserelin )
Suprefact slekkur á þeim hluta hormónakerfis konunnar sem stjórnar starfemi
eggjastokkanna. Lyfið er gefið undir húð og er alltaf gefinn sami skammtur, 0,5 ml.
Aukaverkanir geta komið fram svo sem hita- og svitakóf, höfuðverkur og þreyta.
Einnig getur komið tíðablæðing.
FSH ( follicle stimulating hormon) Gonal-f, Puregon eða Menopur
Lyfið örvar vöxt og þroska eggbúa. Það er gefið undir húð einu sinni á dag seinni
hluta hormónameðferðarinnar. Suprefact er gefið samhliða. Aukaverkanir geta fylgt
lyfjunum, t.d. þrýstingsóþægindi um neðanverðan kviðinn og þyngdaraukning.
Einnig væg óþægindi á stungustað, svo sem marblettir, roði, bólga og kláði.
Doxycyklin ( Doxytab eða Doryx )
Þetta er sýklalyf sem karlmaðurinn tekur seinni hluta meðferðar eða frá upphafi FSH
sprautumeðferðar hjá konunni. Tilgangurinn er að draga úr hættu á bakteríumengun
þegar sáðfrumum og eggjum er blandað saman. Konan tekur einnig doxycyklin eftir
eggheimtuna. Ekki er ráðlegt að taka sýklalyf á fastandi maga eða seint að kvöldi.
hCG (human chorion gonadotropin) Pregnyl, Ovitrelle
hCG er þungunarhormón sem gefið til að ljúka þroskaferli eggjanna fyrir eggheimtu,
svo kölluð ,,miðnætursprauta" eða ,,egglosunarsprauta". Þetta lyf er í sumum tilvikum
einnig notað eftir fósturfærslu til að stuðla að festingu fósturvísa og auka líkur á að
þungun verði. Lyfið er gefið undir húð samkvæmt fyrirmælum.
Aukaverkanir geta fylgt svo sem blöðrur á eggjastokkum, uppþemba og vökvasöfnun.
Progesteron (Gestone)
Þetta er hormón sem er gefið eftir uppsetningu fósturvísa. Tilgangurinn er að stuðla að
festingu fósturvísa í leginu, hindra ótímabæra blæðingu og þannig auka líkur á að þungun
verði. Gestone er olíuupplausn og er gefið djúpt í vöðva. Erfitt getur verið að sprauta sig
sjálfur með Gestone. Aukaverkanir geta fylgt svo sem staðbundin eymsli á stungustað
brjóstaspenna, þyngdaraukning eða útbrot á húð.
Utrogestan (Progesteron)
Um er að ræða töflur sem komið er fyrir í fæðingarvegi eða gleyptar, þetta er hormón sem
er gefið eftir uppsetningu fósturvísa. Tilgangurinn er að stuðla að festingu fósturvísa í leginu,
hindra ótímabæra blæðingu og þannig auka líkur á að þungun verði.
Stundum er þetta lyf gefið samhliða hCG eða í stað Gestone
Femanest eða Progynon (Östradíol)
Um er að ræða hormónatöflur sem gefnar eru í meðferð við uppsetningu á
frystum fósturvísum.




