Eftirfarandi eru upplýsingar um glasa og smásjárfrjóvgunarmeðferð og um meðferðarferlið hjá
ART Medica. Mikilvægt er að kynna sér vel upplýsingarnar það getur auðveldað meðferðina.
Einnig má benda á bæklingana ,,Þegar vandamálið er barnleysi" og
,,Barnleysi-meðferð með tæknifrjóvgun" sem hægt er nálgast hjá ART Medica
Þegar ákvörðun hefur verið tekin um glasafrjóvgun og/eða smásjárfrjóvgun, er gefinn tími í meðferð. Að jafnaði er biðtími eftir fyrstu meðferð um 4 til 6 mánuðir. Þið fáið senda staðfestingu um meðferðarmánuð bréflega.
Starfsfólk ART Medica er ávallt tilbúið að aðstoða ykkur og veita ykkur ráðleggingar,
upplýsingar og stuðning. Hafið samband við okkur þegar blæðingar hefjast í þeim mánuði sem þið eigið bókað merðferð. Glasafrjóvgunarmeðferð hefst með viðtali við ljósmóður/hjúkrunarfræðing.
Hvað kostar meðferðin ?
Það fer eftir eðli og umfangi meðferðarinnar hvað hún kostar. Meðferðina þarf að greiða að
fullu áður en eggheimta er gerð.
Greiða þarf fyrir meðferðina í tveimur greiðslum. Í upphafi meðferðar greiðast 20% af
meðferðargjaldinu svonefnt A-gjald. Þegar ákveðin er tími á eggheimtu á svo að greiða þau 80% sem
eftir standa. Sjá frekari upplýsingar um kostnað undir Gjaldskrá.
Hvað tekur meðferðin langan tíma ?
Meðferðin tekur fjórar til sex vikur frá því að lyfjameðferð hefst þar til uppsetningu fósturvísa er lokið.
Hvað felst í glasa-smásjárfrjóvgunarmeðferð ?
- Sæðisrannsókn
- Bælimeðferð
- Örvun eggjastokka
- Eggheimta
- Frjóvgun eggfruma á rannsóknarstofu
- Uppsetning fósturvísa
- Hormónameðferð eftir uppsetningu fósturvísa
- Þungunarpróf
- Snemmsónarskoðun
Eggjastokkar konunnar eru örvaðir með hormónasprautum til að mynda fleiri eggbú en
í venjulegum tíðahring. Það er einstaklingsbundið hversu mörg eggbú myndast í
meðferðinni og hvernig frjóvgun tekst í kjölfar eggheimtu. Gerðar eru ómskoðanir meðan á hormónameðferðinni stendur. Það er gert til að fylgjast með stærð og þroska eggbúanna og tímasetja hvenæar eggheimta fer fram. Eggheimta er aðgerð þar sem þroskuð egg úr eggbúum konunnar eru soguð út. Frjóvgun fer fram á rannsóknarstofu og tekur það tvo til þrjá daga. Í kjölfarið eru fósturvísar settir upp í leghol konunnar. Hormónameðferð tekur svo við eftir að fósturvísum hefur verið komið fyrir í legholi konunnar.
Þungunarpróf er gert tveimur vikum eftir fósturfærsluna.
Hvað er glasafrjóvgun ? ( IVF - in vitro fertilization )
Fjórum til sex klst. eftir eggheimtu eru eggfrumur og sæðisfrumur settar saman í tilraunaglas
á rannsóknarstofu. Sæðisfruman syndir sjálf að egginu og frjóvgar það í tilraunaglasi.
Hvað er smásjárfrjóvgun ? ( ICSI - intracytoplasmic sperm injection )
Frjóvgun er gerð undir smásjá á rannsóknarstofu fjórum til sex klst. eftir eggheimtu. Einni
sæðisfrumu er stungið með hárfínni glernál inn í hverja eggfrumu.
Hvenær er smásjárfrjóvgun gerð ?
Ef fjöldi og hreyfanleiki sæðisfrumna er verulega skertur er gerð smásjárfrjóvgun. Læknir
tekur, í samráði við ykkur, ákvörðun um það hvort gera á smásjárfrjóvgun.
Einstaka sinnum kemur í ljós eftir að meðferð er hafin að ráðlegt geti verið að gera smásjárfrjóvgun í stað glasafrjóvgunar.
Hvenær er sæðisrannsókn gerð ?
Í upphafi meðferðar þarf karlmaðurinn að skila sæðisprufu. Hana má framleiða heima eða á
ART Medica. Sæðisrannsókn er gerð til að athuga fjölda og hreyfanleika sæðisfrumna.
Stundum getur þurft að endurtekna sæðisrannsókn nokkrum dögum síðar. Ef niðurstöður eru eðlilegar þarf ekki að skila annarri sæðisprufu fyrr en að morgni eggheimtudags.
Fyrri hluti lyfjameðferðar - Bælimeðferðin
Meðferðin hefst oftast á 21 degi í tíðahring konunnar. Gefið er lyfið Suprefact 0,5 ml. undir húð eða Synerela nefúði 2 púst 2x á dag..
Á þessu tímabili sprautar konan sig heima í tvær til þrjár vikur en tilgangurinn er að slökkva á
starfsemi eggjastokkanna. Þetta er nauðsynlegt til að ná að stjórn á hormónakerfi konunnar
og örva þannig myndun fleiri eggbúa en venjulega og hindra ótímabært egglos. Að þessum
tíma liðnum þarf konan að mæta í skoðun. Þá er gerð ómskoðun en það er gert til að tryggja að ekki séu blöðrur á eggjastokkum og að slímhúð í legholinu sé þunn og hægt sé að hefja örvun eggjastokkanna.
Þessi skoðun er alltaf gerð á miðvikudegi milli kl. 8:00 og 10:00.
Hringt er í ykkur milli kl. 14:00 og 16:00 sama dag og þið látin vita hvort hægt er að byrja
örvun með FSH ( hormón líkt því sem líkaminn framleiðir sjálfur og er gefið til að örva vöxt
og þroska eggbúa )
Hvenær á að gefa sér lyfin ?
Suprefact lyfið er sprautað undir húð 1x daglega og Synerela 2 púst 2x ádag. Mikilvægt er að gefa sér lyfin alltaf á svipuðum tíma Suprefact sprautuna á morgnanna eða Synerela nefúðann kvölds og morgna.
Seinni hluti sprautumeðferðar - örvun með FSH
Í seinni hluta sprautumeðferðarinnar er komið að því að örva eggjastokkana. Þá bætist við
hormónið FSH ( Gonal-f, Puregon eða Menopur ) sem örvar vöxt og þroska eggbúa. Þetta
tímabil nær oftast yfir tíu til fjórtán daga. Meðan á því stendur þarf að gera sónarskoðanir
og e.t.v. blóðrannsóknir til að fylgjast með vexti og þroska eggbúa. Eggbúin þurfa að ná 17 mm. lágmarksstærð og þroska til að hægt sé að framkvæma eggheimtu. Á þessu tímabili mætir konan tvisvar til fjórum sinnum í sónar og i sumum tilfellum oftar.
Munið að á þessu tímabili eru gefnar tvær sprautur samtímis Suprefact og FSH, eða Synerela nefúði og FSH sprauta.
Hvenær á karlmaðurinn að taka inn sýklalyf ?
Karlmaðurinn byrjar á sýklalyfjum þegar FSH-örvun hjá konunni hefst. Teknar eru tvær töflur
fyrsta daginn og síðan ein tafla daglega þar til daginn fyrir eggheimtu. Sýklalyf er gefið til að
fyrirbyggja að bakteríur séu í sáðrásinni þegar komið er með sæðissýni á eggheimtudegi.
Hvenær á konan að taka inn sýklalyf ?
Konan byrjar að taka sýklalyf eftir að eggheimta hefur verið gerð. Það er gefið til
að fyrirbyggja sýkingu í kviðarholi eftir eggheimtu.
Er alltaf sami lyfjaskammtur í meðferðinni ?
Stundum þarf að breyta lyfjaskammti í seinni hluta sprautumeðferðarinnar ( FSH ).
Skammtastærðin er endurmetin þegar niðurstaða úr sónarskoðun og eða blóðprufu liggur
fyrir. Þá er hringt sama dag og rannsóknin er gerð til að láta vita ef breyta þarf lyfjagjöf.
Hvað er egglosunarsprauta
Ovitrelle er hormónalyf sem er sprautað er undir húð til þess að framkalla egglos og tímasetja eggheimtu. Lyfið er gefið 32 til 36 klst. áður en eggheimta fer fram. Lyfið er gefið þegar eggbúin hafa náð réttri stærð og þroska. Sprautað er í eitt skipti undir húð.
Mikilvægt er að gefa egglosunarsprautuna nákvæmlega á þeim tíma sem upp er gefinn.
Hvenær á að hætta á lyfjunum ?
Eftir að egglosunnarsprautan hefur verið gefin hættir konan á öllum lyfjum. Eggheimta er
32 til 36 klst. eftir miðnætursprautu.
Karlmaðurinn hættir að taka inn sýklalyf daginn fyrir eggheimtu.
Hvernig fer eggheimta fram ?
Karlmaðurinn kemur milli kl. 8:00 og 8:30. með sæðissýni sem verður að vera innan við einnar klukkustundar gamalt. Konan kemur á ART Medica um morguninn skv. nánari fyrirmælum frá hjúkrunarfræðingum. Konan má borða morgunmat fyrir eggheimtu.
Greiða þarf seinna meðferðargjald svonefn B-gjald.
Við komu er konunni gefið kæruleysislyf og verkjalyf og síðan er eggheimta er gerð í gegn um leggöng með legsónar. Hægt er að fylgjast með þegar eggbúin eru
tæmd og eggin sem náð hafa að þroskast eru soguð út úr eggbúunum. Í hverju eggbúi er
oftast egg en ekki er alltaf egg til staðar í öllum eggbúum sem myndast hafa. Um það
bil 70 til 80% eggbúa innihalda þroskað egg.
Líffræðingur eða meinatæknir á rannsóknarstofu tekur við eggbúsvökvanum jafnóðum og
eggbúin eru tæmd og skoðuð undir smásjá. Eggheimta tekur að jafnaði um 15 mínútur.
Konan þarf að liggja á stöðinni í um það bil hálfa til tvær klukkustundir á eftir og fer síðan heim.
Í einstak tilfellum þarf að liggja lengur ef slæmir verkir fylgja eggheimtu. Ath. konan má ekki aka sjálf heim eftir eggheimtu m.a. vegna áhrifja af lyfjum
Eru deyfilyf gefin við eggheimtu ?
Það er einstaklingsbundið hvort konur finna til sársauka við eggheimtuna, en gefin eru
verkjastillandi og sljóvgandi lyf og staðdeyft er í leggöng.
Hvað má gera eftir eggheimtu ?
Konan fer heim einum til tveimur tímum eftir eggheimtuna. Áhrif lyfjann eftir aðgerðina vara að
nokkru leyti næstu 24 klst. á eftir. Óþægindi í kviðarholi geta komið fram eftir eggheimtuna.
Blætt getur frá leggöngum fyrst á eftir. Oftast er blæðing lítil en getur varað í einn til tvo daga.
Ráðlegt er að hvíla sig þennan dag og tryggja að maki eða einhver annar sé heima til næsta dags.
Þið fáið nákvæmar leiðbeiningar og tímasetningu fósturfærslu hjá ljósmóður/hjúkrunarfræðingi eftir eggheimtuna.
Hvernig er frjóvgun framkvæmd ?
Fjórum til sex tímum eftir eggheimtuna eru eggin frjóvguð á rannsóknarstofu. Eftir meðhöndlun
eru sæðisfrumur og eggfrumur settar saman í tilraunaglas og frjóvgun verður á náttúrulegan
hátt. Smásjárfrjóvgun er gerð með hárfínum glernálum undir smásjá. Einni sæðisfrumu er þá
stungið inn í hverja eggfrumu fjórum til sex tímum eftir eggheimtu. Einum sólarhring síðar eru
eggin skoðuð og athugað hvort frjóvgun hefur orðið. Þau egg sem þá hafa frjóvgast eru ræktuð
áfram í hitaskáp í einn til tvo sólarhringa í viðbót.
meinatæknir metur fósturvísana og velur þá bestu til fósturfærslu en það fer eftir
frumuskiptingu og útliti fósturvísanna. Einstaka sinnum kemur til að frjóvgun verður ekki og er þá haft samband við parið.
Hvernig fer fósturfærsla fram ?
Þið mætið á stöðina tveimur til þremur dögum eftir eggheimtu. Þá fer læknir yfir niðurstöðu
frjóvgunarinnar með ykkur og ákveðið er hve mörgum fósturvísum er komið fyrir í legholi.
Oftast eru settir upp einn eða tveir fósturvísar en aldrei fleiri en tveir.
Fósturfærslan er einföld aðferð og tekur stutta stund. Fósturvísarnir eru settir upp í leghol
konunnar með örmjóum plastlegg upp í gegn um leghálsinn. Þið fáið nákvæmar leiðbeiningar
hjá ljósmóður/hjúkrunarfræðingi um lyfjameðferð eftir fósturfærslu og um tímasetningu
þungunarprófs. Engin lyf eru notuð við fósturfærsluna sjálfa en konan þarf að dvelja á
deildinni í hálfa klst. á eftir.
Hvað má gera eftir fósturfærslu ?
Ráðlegt er að forðast alla líkamlega og andlega áreynslu eins og íþróttir, samfarir, sund
og heit böð þar til niðurstaða úr þungunarprófi liggur fyrir. Meta þarf fjarvistir úr vinnu í
hverju tilviki fyrir sig. Fyrir marga er biðtíminn fram að þungunarprófinu erfiðasta tímabil
meðferðarinnar. Ráðlegt er að stilla væntingum í hóf, en að jafnaði eru um 40% líkur á að
þungun verði við hverja meðferð.
Hvenær er hægt að frysta fósturvísa ?
Hægt er að frysta fósturvísa ef parið óskar eftir því og ef fósturvísarnir eru nægjanlega heillegir til að geta þolað frystingu. Þegar niðurstaða frjóvgunar liggur fyrir fáið þið nánari útskýringar hjá lækni þar sem farið er yfir niðurstöður frjóvgunarinnar. Hægt er að frysta umframfósturvísa hjá u.þ.b. 1/3 hluta para. Greitt er sérstaklega fyrir frystingu , sjá Gjaldskrá.
Frysta fósturvísa má geyma í mesta lagi í 10 ár.
Hvenær er þungunarpróf gert ?
Þungunarpróf er gert 14-16 dögum eftir fósturfærslu. Konan fer í blóðprufu á
rannsóknarstofuna í Glæsibæ milli kl. 8:30 og 10:00.
Hringt er í ykkur milli kl. 14:00 og 16:00 sama dag og niðurstaðan tilkynnt.
Ef þungunarpróf er jákvætt
Ef þungunarpróf er jákvætt er gefinn tími í ómskoðun sem er gerð tveimur og fjórum vikum eftir jákvæða niðurstöðu úr þungunarprófi.
Ef þungunarómskoðunin er eðlileg þá fer konan næst í mæðraeftirlit sem oftast hefst í viðkomandi heilsugæslu á 10-12viku meðgöngu.
Ef þungunarpróf er neikvætt ?
Þið eruð látin vita símleiðis um niðurstöðuna. Það reynist flestum erfitt að takast á við
neikvæða niðurstöðu. Ræðið við lækna eða ljósmæður/hjúkrunarfræðinga á stöðinni
um næsta skref. Þau eru ávallt reiðubúin að veita ykkur ráðleggingar og stuðning.
Hvaða aukaverkanir fylgja lyfjameðferðinni ?
Líkamleg einkenni lyfjanna geta verið mismikil allt frá því að vera varla merkjanleg upp í mikla
vanlíðan.Helstu aukaverkanir eru: hita-og svitakóf, geðsveiflur, höfuðverkur, þreyta,
þyngdaraukning, andþyngsli, og óþægindi neðarlega í kviðarholi.
Getur lyfjameðferðin misheppnast ?
Einstaka sinnum getur orðið of mikil örvun í eggjastokkunum, þá hafa myndast of mörg eggbú
og getur þurft að hætta við meðferðina tímabundið meðan konan er að jafna sig. Oftast má
ljúka eggheimtu en frysta alla fósturvísana. Ef sú staða kemur upp þá heldur konan áfram að taka Suprefact / Synerela þar til blæðingar hefjast. Þetta er gert til að forðast hættulegar aukaverkanir sem geta fylgt oförvun. Örvunin getur einning verið of lítil, þá getur þurft að hætta við meðferðina tímabundið og endurmeta næsta skref.
Geta allir sprautað sig sjálfir ?
Fyrir marga er tilhugsunin um að sprauta sig sjálfur mjög erfið. Reynslan hefur sýnt að flestum
reynist þetta auðvelt þegar búið er að læra að sprauta sig og meðhöndla lyfin. Í upphafi
meðferðarinnar fáið þið viðtalstíma við ljósmóður/hjúkrunarfræðing þar sem meðferðin er
útskýrð og ykkur kennt að sprauta lyfjunum.
Hvað þarf að varast meðan á meðferð stendur ?
Ráðlegt er að láta meðferðina trufla sem minnst daglegt líf og gefið ykkur góðan tíma fyrir
ykkur sjálf. Forðist álag og stress meðan á lyfjameðferðinni stendur. Meðferðin sjálf veldur
álagi. Rannsóknir hafa sýnt að það að taka vítamín hefur jákvæð áhrif á frjósemi bæði hjá
körlum og konum. Fyrir karlmennina er ráðlegt að sleppa heitum pottum og gufuböðum og
neyta ekki sterkra áfengra drykkja. Fyrir konuna er ráðlegt að draga úr mikilli hreyfingu
seinni hluta meðferðarinnar.




