Hjá ART Medica starfar þverfaglegur hópur starfsmanna sem vinnur náið saman.
Stöðin er sú eina sinnar tegundar á landinu og leitast starfsmenn við að fylgjast með nýjungum og þróun í tæknifrjóvgunum.
Markmið Art Medica er
- að hjálpa pörum að ná markmiðum sínum um að eignast heilbrigt barn.
- að veita bestu mögulegu þjónustu sem völ er á.
- að fylgjst með þróun og nýjungum í tæknifrjóvgunum.
Starfsmenn sækja ráðstefnur um ófrjósemi og tæknifrjóvganir á hverju ári og eru meðlimir í Nordic Fertility Society , European Society of Human Reproduction and Embryology og American Society of Reproductive Medicine
Starfsmenn Art Medica taka þátt í vísindastörfum og rannsóknum í tengdum ófrjósemi og tæknifrjóvgun.




