Sögulegt yfirlit
Starfsemi tæknifrjóvgunardeildar hófst í október 1991á kvennadeild LSH . Þá hafði undirbúningur staðið í um það bil eitt ár. Fyrstu fimm árin var deildin í u.þ.b. 70 fermetra húsnæði. Við upphaf starfseminnar hafði verið gert ráð fyrir að meðhöndla um 100 150 pör árlega. Fljótlega kom í ljós að þörfin fyrir ófrjósemismeðferð var meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þann 20. ágúst 1996 var deildin formlega opnuð í nýrra og stærra húsnæði, um 280 fermetrar á kvennadeild LSH.
Í kjölfarið var hægt að auka afköst deildarinnar og bjóða nýja meðferðarmöguleika. Fram að þessum tíma hafði verið veitt hefðbundin glasafrjóvgunarmeðferð þar sem notaðar voru kynfrumur frá parinu sjálfu. Þá hófst einnig frysting fósturvísa. Smásjárfrjóvganir hófust á deildinni 1997, en þeirri aðferð er beitt ef sæðissýni inniheldur fáar sæðisfrumur eða ef þær hafa skertan hreyfanleika. Sama ár hófst einnig notkun á frystum vefjasýnum úr eistum fyrir smásjárfrjóvganir. Árið 2000 hófust glasafrjóvgunarmeðferðir með gjafaeggjum.
Nú eru um 300 - 320 glasa- og smásjárfrjóvganir á ári. Um 300 tæknisæðingar eru gerðar og u.þ.b. 80 - 90 pör fá meðferð þar sem settir eru upp frystir fósturvísar.
Á rannsóknarstofunni eru gerðar um 500 almennar sæðisrannsóknir á ári.
Fyrsta barnið sem til varð við glasafrjóvgun á Íslandi fæddist árið 1992. Síðan hafa fæðst yfir eitt þúsund börn í kjölfar meðferðar á tæknifrjóvgunardeildinni. Í október 2004 flutti starsemin í 500m2 sérhannað húsnæði að Bæjarlind 12 í Kópavogi undir nafninu ART Medica og er nú einkarekin af læknunum Guðmundi Arasyni og Þórði Óskarssyni
ART Medica starfar samkvæmt reglugerð Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um tæknifrjóvgun, nr. 568/1997.
Rannsóknarstofa ART Medica
Starfsemi rannsóknarstofunnar hófst árið 1953 í kjallara Ljósmæðraskólans. Þar voru í upphafi gerðar blóðmeinafræðirannsóknir, þungunarpróf og sæðisrannsóknir.
Nú tilheyrir rannsóknarstofan ART Medica og þar eru framkvæmdar almennar sæðisrannsóknir, ætisgerð, meðferð kynfrumna fyrir tæknifrjóvganir og ræktun og geymsla kynfrumna og fósturvísa.




