Flýtileiðir um vef:

Frysting fósturvísa

Þegar umframfósturvísar eru til staðar er hægt að frysta fósturvísa óski parið eftir því. Frysta fósturvísa má geyma í mesta lagi í tíu ár .  Greitt er fyrir frystingu fósturvísa og árlega þarf að greiða geymslugjald sem er innheimt með gíróseðli einu sinni á ári.

Meðferð þar sem settir eru upp fósturvísar eftir frystingu er mun auðveldari en glasafrjóvgunarmeðferðin. Þá er um lyfjameðferð, sprautur eða nefúða og töflumeðferð eða eingöngu töflumeðferð að ræða, sem tekur um það bil 2-4 vikur.  Einng  Koma þarf á deildina í tvö til þrjú skipti í sónarskoðun  áður en fósturvísar eru settir upp í leghol konunnar.

Ef par óskar eftir að láta eyða fósturvísum þarf að senda skriflega beiðni til ART Medica, undirritaða af báðum aðilum.


Leitarvél | Aftur í flýtileiðir

Ýmislegt | Aftur í flýtileiðir
Velkomin á heimasíðu okkar. Góður árangur. Sérfræðingar í ófrjósemi síðan 1991
Graphic