Flýtileiðir um vef:

Eggjagjöf

Eggjagjöf getur verið annaðhvort nafnlaus eða undir nafni, það fer eftir óskum gjafa og þega hvort um nafnleynd er að ræða.
 

Hvaða konur þurfa eggjagjöf ?

 

Eggjagjöf gefur ákveðnum hópi para og  einstaklinga sem eiga við ófrjósemi að stríða von sem ekki var til staðar áður:

  • Konur sem misst hafa eggjastokkana á yngri árum, til dæmis vegna krabbameins, skurðaðgerða, lyfjameðferðar eða geislameðferðar.
  • Breytingaskeið getur átt sér stað hjá um 1% kvenna fyrir 40 ára aldur.  
  • Í sumum tilfellum er um að ræða arfgenga sjúkdóma þar sem veruleg hætta er á að móðir beri sjúkdóminn í barn sitt.
  • Í þeim tilfellum sem  eggjastokkar svara ekki meðferð í glasafrjóvgunum.

Hver getur gefið egg?

Kona sem gefur egg skal að jafnaði ekki vera eldri en 35 ára og ekki haldin neinum þekktum arfgengum sjúkdómi, kynsjúkdómum né öðrum sjúkdómum sem gætu aukið á hættu við eggjagjöf fyrir hana.

 

Get ég gefið egg ef ég er á getnaðarvörn?

Já ,  konur geta gefið egg þó þær eru á getnaðarvörnum  ss.  á Pillunni eða með lykkju.

 

Hvað þarf að gerast áður en ég get gefið egg?

Þú þarft að hringja í  hjúkrunarfræðing hjá ART Medica sem mun skrá niður grunnupplýsingar og gefur nánari upplýsingar um eggjagjöf .  Í framhaldi af því  verður þú bókuð  í  viðal og skoðun hjá lækni.  Í því viðtali er farið yfir meðferðina og gerð er skoðun þar sem tekið er  ræktunar sýni frá leghálsi og leggöngum. Eftir viðtalið þarf konan að fara í blóðprufur þar sem kannað er m.a.  hormóna ástand.  Við upphaf meðferðar er fer hjúkrunarfræðingur yfir ferlið sem framundan er og afhendir lyf sem konan notar í meðferðinni.   Áður en  meðferð hefst  fer konan einnig í viðtal hjá félagsráðgjafa.

 

 

Hvað tekur meðferðin langan tíma?

Frá því að lyfjameðferð hefst og fram að eggheimtu  eru u.þ.b. 4 vikur

 

Hvað lyf þarf ég að taka ?

Byrjað er að taka lyf sem heitir Suprefact.   Suprefact  er sprautulyf  sem er sprautað undir húð daglega.    Oftast er byrjað á Suprefact  á 21 degi  frá upphafi blæðinga.   Eftir að næstu blæðingar byrja kemur þú í sónarskoðun og  ef skoðun er eðlileg   þá bætist við  Menopure / Gonal F  eða  Puregon  örvunarlyf sem  sprautað er undir húð  daglega í  10-12daga.   .   Á meðan þú tekur  örvunarlyfin   eru gerðar  2-3 ómskoðanir til að meta örvunina .  Eftir eggheimtu  er Suprefact   haldið áfram þar til blæðingar  byrja.

 

Get ég fengið aukaverkanir af lyfjunum ?

Já  þú getur fengið aukaverkanir af  Suprefact sem eru þá einkum , höfuðverkur , svita og hitakóf, skapsveiflur og þreyta.  Oftast eru þessar aukaverkanir vægar eða ekki til staðar.

 

Hefur þessi meðferð einhver áhrif  seinna meir á mína frjósemi eða aukna hættu á krabbameini ?

Nei , engar rannsóknir hafa sýnt fram á það.

 

Er ég eitthvað frá vinnu ?

Á meðan lyfjameðferðinni stendur þarft þú að koma í 3-4 sónarskoðanir . Þessar skoðanir eru snemma morguns  kl. 8-9  á  mánud , miðvikud, eða föstudögum og taka skamman tíma.   Á eggheimtudegi þarft þú  að vera frá vinnu og í  1-3 daga á eftir

 

Kostnaður og óþægindagjald

Gert er ráð fyrir að egggjagjafinn   hljóti ekki kostnað af gjöf sinni  og er greitt  óþægindagjald sem er  kr 75.000-100.000 .   Þessi greiðsla fer fram eftir eggheimtu.

 

 

 

 

Nánari upplýsingar um eggjagjöf og hvernig hún fer fram er hægt að nálgast hjá ART Medica Bæjarlind 12 Kópavogi sími 515-8100  /  ritarar@artmedica.is


Leitarvél | Aftur í flýtileiðir

Ýmislegt | Aftur í flýtileiðir
Velkomin á heimasíðu okkar. Góður árangur. Sérfræðingar í ófrjósemi síðan 1991
Graphic